Leita í fréttum mbl.is
Embla

ok!

Nú verða einhverjir "Dýravinir" óðir!! Ég minni á að ísbirnir eru ekki gæludýr!!

 


mbl.is Búið að skjóta ísbjörninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gaman af þessu!

Hér rekst maður á gamla vin sem eru að gera góða hluti og einnig að gera það sem sem hún hefur gaman af:-)

Þessir plattar voru út um allt þegar ég var ungur enn þeim hefur fækkað á heimilum landsmanna og kannski verður þetta Jólagjöfin í ár! Neyslumynstrið 99-09,,,,, ætli komi ekki eftir 10 ár Neyslumynstrið 09-19 ,,,hver veit og hvernig ætli það komi til með að líta út?

Rósa mín, Gaman að rekast á þig í sumar og gangi ykkur vel!


mbl.is Neysla á gömlum grunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norge!

Jæja þá er komið að því að segja frá því sem maður veit um staðin sem er Austurey í Noregi!(Osteröy) og er rétt norðan við Bergen. Það sem við erum að fara að gera er að bora og sprengja göng sem verða 1,5 km og eru á milli úr dal sem ég er ekki með á hreinu hvað heitir og yfir í kårvik Það á svo að koma brú yfir smá sund. Vinnubúðirnar er á stað sem heitir hauge held ég að sé rétt! Enn ég er enn að komast inní hlutina hér!! Verkstæðið er tímabundið í húsi sem Vegvesenid(Norska vegagerðin) á og er í bæ sem heitir Lonevåg og fáum við að vera þar þangað til verkstæðið verður komið upp hjá okkur enn það verður inní dal þar sem aðal gangnamuninn verður.

Veðrið er búið að vera hundleiðinlegt, mígandi rigning og mjög dimmt yfir, og vona ég að það fari að lagast til að ég geti farið að mynda eitthvað enn það hefur ekki verið leggjandi á vélina að fara út í þetta veður.

Jæja meira seinna!!


Hvað getur maður sagt!

Það er svo sem ekki mikið að segja,,, Því hér gerist ekki mikil utan við vinnu og svefn!Annars er þetta búið að vera hið rólegasta úthald bara vinna frá 7-19 og það upp í gröfu við ýmis verk. Ég byrjaði á að raða grjóti í kringum mastur 2. og var það tvöföld grjótröðum með 1/1.25 fláa og var það bara gaman,,,,,,,, það er alltaf gaman að gera eitthvað sem maður hefur ekki gert áður

009

Svo var það Þyrlupallurinn sem verður kláraðir með fínefni næsta sumar og svo var það að moka niður bakkana á námuni þar sem mest allt efni til vegagerðar var tekið og forma það og vorum við Knud Daninn síblaðrandi í þessu verki ég á gröfu enn hann á ýtu.

Þetta Grænlandsævintýri er að verða búið ( í bili) því  ég kem heim á Fimmtudag og fer ekki hingað út aftur, heldur er það Noregur sem er næsta verkefni enn hvenær ég fer þangað er ekki komið á hreint, allavegana þarf ég eitthvað frí því gluggarnir verða að komast í áður enn ég fer aftur til vinnu!

Þangað til næst,,,,,,Bless

 


Frí og brottför

Þá ég búin að vera í fríi í tæpar 2. vikur og er búin að hafa það svona upp og ofan ,hress og óhress! Ég náði mér í þessa líka fínustu flensu enn eins og sönnum kallmanni sæmir þá hristi ég hana af mér á met tíma!

Ég er búin að fá verktaka í að skipta um 2. glugga hjá mér en það á sennilega eftir að vinda uppá sig með fleiri verkum og kannski fleiri gluggum, hver veit !´

Ég fer til Grænalandsins á morgun og er áætlaður tími þar 4.vikur og þá er annaðhvort 2. vikna frí og svo Grænland aftur eða eitthvað frí og svo jarðgangnagerð í Noregi. Nánar til tekið Hér Ég fékk það staðfest að þeir vilja fá mig í það verkefni og er það vel því ekki vil maður verða atvinnulaus er það!

ÉG ætla að æfa mig í Norðurljósamyndum í þessu úthaldi var aðeins byrjaður og fékk góðan skóla hjá Bigga á Verkstæðinu eins og þessi hér og hér 

Annars verður fullt að mynda í Noregi svo það verður bara gaman og spennandi að takast á við það mynda þar.

Ég ætla að reyna að koma lífi í þessa síða þó svo að Dabbi sé komin í stólinn hjá Morgunblaðinu og ég ætla ekki að hætta hér!! alllavegana ekki á meða þessa er frítt:-D


Og legg ég hér með til,,,,,,,,,,,

Að meistari Steve Vai fái annað til skoðunar og David Gilmour hitt!!!!!!

 Annars finnst mér forvitnilegt orðalag í þessari frétt!!!!! "Tvö ný tónverk" Hann dó 1791!! hvernig geta þessi verk verið ný?


mbl.is Tvö verk finnast eftir Mozart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af mér!

Nú eru 3-4 dagar síðan fjörðurinn varð með öllu íslaus og er það vel, Því þá hefst sigling á milli 2.fjarðar og Sisimiut með Blika sem er milliferðarbáturinn og er það mikið betra enn að fara með fiskibátum sem hafa verið notaðir síðan sleðaleiðin lokaðist og tekur líka mikið skemmri tíma.

Verkið gengur vel enn nóg er samt eftir og er nóg að gera, Slóakarnir eru komnir til að setja upp Möstrin og línuna og nota þeir Þyrlu til þess, eins er Manfred(Held að hann heiti það) sem er frá Austurríki hér til að setja saman vélbúnað og eins eru komnir 2.Þjóðverjar til að leysa hann af þegar hann fer í frí. Portalbyggingin er að verða klár og margt fleira!! Jarðgangnagerðin er langt komin enn það er bara fáir kallar sem eru í henni núna miðað við það sem var.

Ég er búin að fá bókað flug heim,,fer til Nuuk 1.Júlí og frá Nuuk til Keflavíkur 2.Júlí, og er þá komin í 5.viknafrí, Ég fer í segulómskoðun 3.Júlí og þá verður í framhaldi tekin ákvörðun um hvað verður gert við hnéð á mér, enn það er bara búið að vera gott það sem af er, hef bara snúið uppá það einusinni á þessum 4.vikum sem er frábært var vanur að finna til í því á hverjum degi, enn þetta segir mér að spelkan er að vinna gott verk. Yngvi Leó kemur svo 5.Júlí og þá hefst hið eiginlega frí!!!:-) Með ferð sem verður vonandi eftirminnileg fyrir hann eða Þá ef að Bjarki verður eitthvað með okkur enn þá á eftir að koma í ljós.

Annars ekki neitt að frétta þannig!! bara vinna og sofa!!

og svo eitt sem er af disk sem verður sennilega mikið spilaður í fríinu!! :-)


mmmmmmmmm Já!!

 Ég var víst búin að lofa Móður minni að setja eitthvað hér inn á hverjum Sunnudegi og hef sko ekki verið að standa mig í því( og er því sennilega dottin út af Jólagjafalistanum í Ár!! )

Enn af mér er svo sem ekki neitt að frétta, Það er alltaf það sama sem er í gangi, Vinna,Borða, Sofa!! og smá tími á kvöldin fyrir mig. Síðan ég kom út er búið að vera frábært veður nánast hvern einasta dag enn ég hef ekki getað notið þess því ég hef verið að vinna inni í göngum frá 7-19 og stundum lengur, enn ég hef samt reynt að finna tíma til að fara með myndavélina aðeins út. ´

Ég á að koma heim aftur 25.Júní enn er að reyna að fá að vera lengur eða til 1-2 Júlí og fara þá í 5.vikna frí og ætla þá að vera hallærislegur eins og í fyrra og fara í tjaldútilegu með Yngvi og taka góðan tíma í að komast norður.

Talandi um Yngva Leó!!! enn þessi Gullmoli sem ég á er einmitt 10.ára í dag(Tíminn er sko fljótur að líða!! ) Mér finnst eins og það hafa verið í gær eða fyrradag sem ég fékk hann fyrst í hendir og var að drepast úr monti yfir þessum dreng ( og er enn að deyja úr monti útaf honumHappy)

Enn elsku Yngvi Til hamingju með Afmælið ,,,,,,,,ég sakna Þín!!

Honum finnst þetta skemmtilegt lag

og Þetta líka!!

 


12!!!

Fyrir nokkrum árum ,,,, slatta af árum,,,, kynntist ég ungum manni!! þá mjög ungum manni!!! þetta var árið 1997 um haustið og fóru kynni okkar vaxandi og eru enn mjög góð og vona ég að svo verði um ókomnaframtíð. Þessi ungi maður á stóran sess í hjarta mínu og er mér sem sonur og er hann mér mjög mikilvægur og ekki síður mikilvægur enn Yngvi,,,,,enn þetta er hann Bjarki minn, enn hann er einmitt 12 ára í dag,,,,,,,,,

Ég veit að hann hefur gaman af þessu,,,,,,,,,

Og eins hafði hann gaman af þessu,,,,,,,, og hefur kannski enn?

Þetta var líka í uppáhaldi hjá honum fyrir mörgum árumCool

Elsku Bjarki til hamingju með daginn!!!!


Gleðilega Páska!!

Ég fékk kvörtun um daginn um að ég setti aldrei neitt hér inn!!!! Það er svolítið til í því ég hef ekki verið duglegur hér eftir  að ég fór að vera inná Facebook enn ég skal lofa að reyna að vera duglegri hér í framtíðinni.

Sólsetur í 1

Hér er svo sem ekki neitt að frétta,, Vinna og éta,,, annars er ég búin að liggja veikur í 3. daga með einhverja kvefpest og er megnið af mannskapnum búið að leggjast enn svona vinnubúðir eru til valdar til að smita því hér eru menn mikið að vinna saman og smithætta mikil.

Ég hef reynt að vera duglegur með myndavélina og þær myndir sem eru við þessa færslu myndir sem ég hef tekið núna í þessu úthaldi og ég er hvað ánægðastur með.

Upp á vatni

Verkið gengur vel og er á undan áætlun held ég enn mikið er samt eftir og mikið sem á eftir að gera og verður ekki gert fyrr enn í sumar tildæmis öll jarðvinna utandyra sem er ekki hægt að fara í fyrr enn frost fer úr jörðu ,,, það á eftir að fara á alla slóða í kringum línuna og laga þá og er það talsvert verk eins á eftir að plana tippinn og forma hann að landslaginu. Það á eftir að gera bryggjuna og gera Þyrlupall og margt fleira!

Veiðikofi

Ég er bókaður heim 30. Apríl og tek þá 2. vikna frí og reikna ég með að skreppa norður og láta stjana við migGrin og eins þarf ég að koma eini hurð í hjá mér og láta mæla og skoða glugga hjá mér.

ufo

Fleira hef ég svo sem ekki að segja enn lofa því að næsta færsla kemur í síðasta lagi eftir slétta viku!!! Ég lofa!!! og það er ástæða fyrir því!!! kemur í ljós á Sunnudaginn næsta!!

Bless í bili.


Næsta síða »

Höfundur

Þráinn Maríus
Þráinn Maríus

Hvað er líf án Gítarstrengs?

Nýjustu færslur

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.2.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 178
  • Frá upphafi: 92072

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Feb. 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband